143. löggjafarþing — 109. fundur,  13. maí 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[21:58]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Árni Páll Árnason) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég var fjarverandi meðan drýgstur hluti gestakomu í málinu stóð yfir, en ég þykist muna að stjórnskipunarsérfræðingar hafi ekki verið þar á meðal. Ég mundi telja akk í því að fá slíka sérfræðinga til fundar við nefndina milli umræðna. Ég mundi líka telja akk í því að fá sérfræðinga á sviði veðréttar, samningaréttar fyrir nefndina milli umræðna til að tjá sig um þann lögfræðilega óskapnað sem mér finnst frumvarpið vera. Ég hef aldrei áður séð frumvarp búið út með þessum hætti með engum efnislegum viðmiðum, með opinni heimild til ráðherra til að ráðstafa 80 milljörðum af almannafé án efnislegra viðmiða og efnislegra forsendna og augljósa mismunun á fólki sem er í fullkomlega sambærilegri stöðu. Húsnæðissamvinnufélögin eru kannski gleggsta dæmið um það síðastnefnda og dæmið sem hv. þingmaður rekur um fólk (Forseti hringir.) sem býr erlendis.