143. löggjafarþing — 109. fundur,  13. maí 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[22:05]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Árni Páll Árnason) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er kaupmáttarrýrnun sem er afleiðing af gengisfalli krónunnar. Hv. þingmaður á vegna þess þáttar að ganga í félag með mér og öðrum sem vilja alvörugjaldmiðil í þessu landi svo að við fáum stöðugan gjaldmiðil og losnum við verðtryggingu sem þar með mun ekki með þessum hætti koma í bakið á fólki. Fólk sem býr í löndum með alvörugjaldmiðil og fasta vexti býr ekki við svona bakreikninga.

Lausnin í því tilviki sem hv. þingmaður nefnir er hins vegar langbest, ódýrust og heppilegust með því að auka vaxtabætur. Það er langbesta og skilvirkasta leiðin því að það er engin ástæða til að bera fé á þá sem eru í stórum húsum með litlar skuldir og eru ekki í nokkrum vanda með að greiða af þeim. Það leysir ekki vanda fólks sem ræður ekki lengur við að borga lánin.

Ég er alveg sammála hv. þingmanni um að þetta er vandamál, en þessi aðgerð miðast ekki sérstaklega við það fólk, hún færir fullt af fólki peninga sem (Forseti hringir.) er ekki í nokkrum vanda með að borga af lánum sínum í dag.