143. löggjafarþing — 109. fundur,  13. maí 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[23:04]
Horfa

Elsa Lára Arnardóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Okkur hv. þm. Guðmund Steingrímsson greinir á, við erum ekki sammála um þetta. Ég vil að farið sé í almennar aðgerðir. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvers vegna hann er á móti því að þessi sérstaki bankaskattur sé lagður á og sóttir séu þeir 80 milljarðar til fjármálafyrirtækjanna, fjármálafyrirtækja sem hafa sogað til sín hluta af eignarhluta heimilanna. Hvers vegna er hann á móti því að fjármálafyrirtæki og þeir sem ollu þeim skaða sem varð hér á landi komi inn í dæmið og endurgreiði íslenskum heimilum að hluta þann forsendubrest sem hér varð? Hvers vegna?