143. löggjafarþing — 109. fundur,  13. maí 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[23:09]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við erum í meginatriðum sammála um það sem hér hefur verið lagt á borð. Við deilum þeirri skoðun, okkur í Vinstri grænum fannst þingsályktunartillaga forsætisráðherra furðuleg og algjörlega óþarft fyrir ríkisstjórnina að biðja Alþingi um leyfi til að gera það sem hún er að gera. Það hefur í raun ekkert með það að gera, að mínu viti, hvort greiningar liggja fyrir eða ekki, því að það á að vera frumskylda að greina svo viðamikið verkefni.

Miðað við kosningaloforðin sem gefin voru í kosningabaráttunni, og við höfum rengt mjög mikið og sagt að væru óábyrg, þá spyr ég: Við hverju bjóst hv. þingmaður og Björt framtíð af hálfu þessara ríkisstjórnarflokka þegar umrædd þingsályktunartillaga var sett fram? Þetta snýst ekki bara um að fá greiningar, (Forseti hringir.) þetta snýst um eitthvað miklu meira en það, að (Forseti hringir.) styðja við óraunhæfar tillögur sem settar eru fram á (Forseti hringir.) óraunhæfan hátt í kosningabaráttu á sínum tíma.