143. löggjafarþing — 109. fundur,  13. maí 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[23:20]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Guðmundur Steingrímsson) (Bf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mér finnst vaxtabótakerfið vera kerfi sem við gætum nýtt til þess að koma til móts við heimili í vanda vegna verðbólgu.

Ég hef stundum spurt mig: Mun einhvern tíma koma til þess í þessu þjóðfélagi að við getum búið við 3–4% óverðtryggða vexti á íbúðalánum til langs tíma? Af hverju er það aldrei rætt sem markmið? Erum við alveg búin að gefa það upp á bátinn í íslenskri hagstjórn? Ég mundi vilja stefna þangað. Ég mundi vilja hanna allar aðgerðir ríkisvaldsins að því að stefna þangað og ná því markmiði. Þá mundi ég skoða gjaldmiðilinn. Ég mundi skoða einhæfni í atvinnulífinu. Ég mundi skoða ríkisfjármálin. Ég mundi gera allt til þess að reyna að koma á varanlegum stöðugleika á Íslandi. Þá mundum við sjá raunverulegar kjarabætur. Þá mundum við sjá eitthvað sem kæmi raunverulega til móts við (Forseti hringir.) skuldug heimili til langs tíma. Mér finnst það einkennilegt hvernig þetta (Forseti hringir.) sjálfsagða markmið er eiginlega aldrei rætt.