snjómokstur á Fjarðarheiði.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svör hennar, en betur má ef duga skal. Ég get tekið undir orð hv. þm. Kristjáns Möllers um mikilvægi þess að greiðar samgöngur séu við Seyðisfjörð. Hann rakti ágætlega þau rök.
Ég vil líka bæta þar við að það skiptir gríðarlega miklu máli að við gætum þess að þau þorp og þeir kaupstaðir úti um land sem eru í byggð fái að lifa áfram. Lykilatriðið í því er auðvitað að greiðar samgöngur séu til þessara staða og ég tel mjög mikilvægt að við förum að leggja fjármagn í það að draumur Seyðfirðinga um að koma jarðgöngum undir Fjarðarheiði verði að veruleika.
Það er lykilatriðið til að halda þeim stað í byggð og að atvinnulíf geti blómstrað með þeim hætti sem verið hefur og aukist til frambúðar.