kortaupplýsingar.
Virðulegi forseti. Á sama hátt og við höfum verið að opna þennan gagnagrunn og gera hann gjaldfrjálsan með sambærilegum hætti og mörg önnur nágrannalönd okkar, alveg sama hvaðan uppsprettan er, hvort það er samkeppni frá Google eða það að svona stefna sé orðin uppi við í opinberri stjórnsýslu, að minnsta kosti hjá löndum sem við berum okkur saman við, þá tel ég það vera til mikilla bóta. Það sýnir sig með þeim tölum sem ég fór með áðan að það hefur sannarlega verið rétt spá að þetta hafi skilað miklu og kannski meiru en menn máttu vænta.
Það væri áhugavert að fá þá samantekt, ég tek undir með hv. fyrirspyrjanda. Á sama hátt þurfum við einnig að skoða með hvaða hætti menn hafa verið að breyta stofnanastrúktúr sínum og kerfi í þeim löndum sem við höfum verið að horfa til, hvaða starfsemi fari þar fram. Stefna núverandi ríkisstjórnar hefur meðal annars verið sú að skoða stjórnkerfið allt saman með skilvirkni í huga, að fara betur með fé og er það í samræmi við tillögur hagræðingarnefndarinnar sem við nefndum í fyrirspurn fyrr í morgun. Sannarlega eru uppi áform og ég hef verið að vinna að því í allan vetur í umhverfisráðuneytinu að greina alla málaflokka og þau svið sem eru hjá mismunandi stofnunum ráðuneytisins. Það varð mér eiginlega hálfgert undrunarefni þegar ég heimsótti stofnanirnar síðasta sumar og fram á haust hversu margir voru að vinna að sambærilegum hlutum.
Ég tel það mjög mikilvægt áform að samhæfa og samkeyra þessar upplýsingar, koma þeim jafnvel fyrir á einum stað ef hægt er eða í það minnsta að auka samstarf á milli stofnana með þeim hætti að ekki sé verið að eyða opinberu fé í að gera það sama á tveimur stöðum, ef ekki fjórum.