143. löggjafarþing — 113. fundur,  14. maí 2014.

frestun verkfallsaðgerða Félags íslenskra atvinnuflugmanna gegn Icelandair.

600. mál
[22:49]
Horfa

innanríkisráðherra (Hanna Birna Kristjánsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil nefna það örstutt, vegna þess að hér er nokkuð rætt um að sett hafi verið fordæmi í Herjólfsdeilunni sem hafði staðið í fjórar vikur þegar þingið brást við með lagasetningu, að það er miklu frekar fordæmi að finna í öðru máli, þetta frumvarp er í eðli sínu mun líkara þeim lögum sem samþykkt voru árið 2010 vegna flugvirkja. Ef það er eitthvert fordæmi í þessu máli var það sett á þeim tíma.

Ég vil einnig taka það fram að ég vona innilega að til þess komi ekki aftur í bráð og vonandi ekki í langan tíma að við þurfum að grípa til slíkra aðgerða. Ég hef ítrekað sagt að þetta er neyðarúrræði, algjört neyðarrúrræði. Ég vona innilega að þær deilur sem hv. þingmaður nefnir komi hvorki til kasta ráðherra ríkisstjórnar né þings. Gerist það hins vegar á einhverjum tímapunkti að þau verkefni sem undir mig heyra kalla á lagasetningu með þeim hætti sem hér er um að ræða mundi ég sem ráðherra óska eftir því að þingið yrði kallað saman. Það er vegna þess að ég er í prinsippinu mjög ósátt við að þurfa að ganga þennan veg og tel að þegar slíkt er gert þurfi að kalla til þingið allt. Þannig að gerist þetta einhvern tímann aftur á minni vakt og þingið er ekki á sinni vakt mun ég óska eftir aðkomu þingsins, að þingið yrði kallað til fundar til að fara yfir það.