143. löggjafarþing — 113. fundur,  14. maí 2014.

frestun verkfallsaðgerða Félags íslenskra atvinnuflugmanna gegn Icelandair.

600. mál
[22:57]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil fyrst af öllu þakka hæstv. ráðherra fyrir þau skýru orð sem hún lét falla hér áðan um að hugur hennar stæði til þess, kæmi til frekari afskipta stjórnvalda af vinnudeilum með lagasetningu á næstu mánuðum, að gangast fyrir því að þing kæmi saman. Það skiptir miklu fá þá yfirlýsingu því hún er mikils virði þegar það uppnám er á vinnumarkaði sem raun ber vitni. Ég vil þess vegna líka þakka hæstv. ráðherra fyrir það með hvaða hætti hún hefur nálgast þetta mál og átt samráð við stjórnarandstöðuna. Ég held að hún hafi haldið eins vel á því fyrir sinn hatt og mögulegt er.

Vandinn sem hér er við að glíma er hins vegar sá að við erum að uppskera núna afleiðingarnar af þeirri groddastælastrákapólitík sem forustumenn ríkisstjórnarinnar innleiddu í samskiptum við aðila vinnumarkaðarins með kjarasamningunum 21. desember og hafa haldið í gangi síðan. Þeir létu skína í aðkomu ríkisvaldsins að kjarasamningum. Um leið og búið var að skrifa undir var hendinni kippt til baka.

Það hefur ekki enn verið efnt það sem þá var lofað um gjaldskrárlækkanir. Það frumvarp er enn í þinginu. Ríkisstjórnin hyggst ekki efna nema að helmingi til þá litlu gjaldskrárlækkun, sem hún er þó að efna, samkvæmt þeim fyrirheitum sem gefin voru 21. desember.

Það er ekki bara að ríkisstjórnin hafi ekki efnt sitt, heldur höfnuðu forustumenn ríkisstjórnarflokkanna, og lögðu sig sérstaklega fram um að gera það með miklum stælum hér rétt fyrir jól, höfnuðu eindreginni beiðni verkalýðshreyfingarinnar um það að eitthvað kæmi út úr skattbreytingum til þeirra sem væru á launum undir 250 þús. kr. Það mátti ekki hrófla á nokkurn hátt við planinu stóra um skattalækkanir til fólks með 800 þús. kr. og yfir, upp á 4.200 kr. Það var heilagra en nokkuð annað. Það var það sem öllu skipti. Það mátti ekki láta fólk með undir 250 þús. kr. fá eina einustu krónu í skatteftirgjöf til þess að greiða fyrir gerð kjarasamninga eða til þess að sýna framlag á réttlætisforsendum af hálfu stjórnvalda við gerð kjarasamninga.

Ekki nóg með það. Við munum líka eftir hinum langvinnu þrætum hér í desember milli okkar í stjórnarandstöðunni og ríkisstjórnarinnar um útfærsluna á skattalækkuninni á meðaltekjuhópana. Ríkisstjórnin vildi endilega að þeir sem væru með 300 þús. kr. fengju innan við 500 kr. í sinn hlut, en þeir sem væru með 800 þúsund og yfir, 4.200 kr. Við í Samfylkingunni lögðum fram breytingartillögu við fjárlagagerðina í samræmi við tillögu sem Alþýðusambandið hafði sett fram um að skattbreytingarnar nýttust frekar meðaltekjuhópum, fólkinu með laun á bilinu 250 og 600 þúsund. Ríkisstjórnin hafnaði því, barðist á hæl og hnakka, en aðilar vinnumarkaðarins náðu þó að hrekja hana að einhverju leyti til baka.

Ríkisstjórnin hefur ekki komið fram með nein skýr fyrirheit um framlög í húsnæðismál. Í nýjum skuldalækkunaraðgerðum upp á 150 milljarða er lágtekjufólk skilið eftir, leigjendur skildir eftir og engir fjármunir helgaðir því verkefni að byggja upp félagslegt húsnæðiskerfi. Þar er bara vísað á verkefnisstjórnir og framtíðina og enn er allt óljóst um það hvaða fjármunir koma fram. Ef ráða má af því sem við höfum heyrt frá félags- og húsnæðismálaráðherra verður það líklega um milljarður á ári sem er það sama og hefur hingað til farið í niðurgreiðslu á húsnæðislánum. Það mun ekki duga til uppbyggingar leiguhúsnæðis sem valkosts.

Svo gaf ríkisstjórnin aðilum vinnumarkaðarins langt nef með tillöguflutningi sínum um að draga til baka aðildarumsóknina að Evrópusambandinu án þess að ræða það við nokkurn mann og án þess að bíða eftir nokkurri efnislegri greiningu á því.

Það er þessi fruntaskapur í samskiptum við aðila vinnumarkaðarins sem hefur sett samskipti á vinnumarkaði í uppnám. Það er á ábyrgð forustumanna ríkisstjórnarflokkanna sem hafa keyrt og valsað um af eigin steigurlæti og ekki viljað tala við nokkurn mann eða eiga samtal við nokkurn mann eða byggja upp traust og trúnað við nokkurn mann. Það er þess vegna sem vinnumarkaðurinn er allur í uppnámi. Það er þess vegna sem tugir starfsstétta eru nú að fara í verkfall. Þetta gerist þegar brotin er sundur sáttin í samfélaginu. Þegar menn berjast gegn réttlætinu, þegar ríkar byrðar eru lagðar á meðaltekjufólk og lágtekjufólk og þeim létt markvisst af ríkasta fólki landsins þá gerist þetta. (Gripið fram í.) Það er rifnar allt í sundur. Þetta er fullkomlega á ábyrgð ríkisstjórnarinnar. (Gripið fram í.) Ég vísa svo innilega ábyrgðinni á þessu ástandi öllu saman til forustumanna ríkisstjórnarinnar. (JónG: Minni þig á flugvirkja á síðasta kjörtímabili.)

Virðulegi forseti. Lagasetningin á Herjólf var afdrifarík mistök hjá ríkisstjórninni. (Gripið fram í: Rétt.) Þá stökk ríkisstjórnin til og beitti meirihlutavaldi sínu til þess að setja lög á yfirvinnubann. Það var ekki einu sinni verkfall, það var yfirvinnubann. Þar með voru skýr skilaboð send til rekstraraðila allra fyrirtækja á samgöngusviði í landinu: Þið munuð ekki þurfa að beygja ykkur á nokkurn hátt fyrir nokkurri kröfu því við munum losa ykkur undan minnstu óþægindum í rekstri. Minnstu truflun í rekstri verður mætt með lögum af hendi ríkisvaldsins. Þetta voru afdrifarík mistök. (Gripið fram í.) Við sjáum núna hvaða áhrif þessi mistök hafa haft. (JónG: … verkfallinu.) Við verðum að horfast í augu við það að ef svona skilaboð eru gefin við yfirvinnubanni (Gripið fram í.) örfárra manna í viðkvæmum atvinnugreinum þegar samningar eru opnir þá er verið að gefa fyrirheit til annarra í sambærilegri stöðu, enda er það núna þannig að einn verkfallsdagur er búinn hjá flugmönnum og þá eru þessi lög sett. Það er auðvelt að flytja hér ræður eins og hv. frammíkallari, Jón Gunnarsson, gerir um að flugmenn séu hátekjustétt og eigi þar af leiðandi ekki að eiga verkfallsrétt. (Gripið fram í: Þú sagðir það.)

Það er hins (Gripið fram í.) vegar þannig (Gripið fram í.) það er hins vegar þannig — ef hv. þingmaður vill halda ræðu (Forseti hringir.) þá er sjálfsagt að setja hann á mælendaskrá, virðulegi forseti. (Gripið fram í.)(Forseti hringir.) (Gripið fram í.)(Forseti hringir.)

(Forseti (KLM): Má forseti minna á hljóð í þingsal.)(Gripið fram í.) (Gripið fram í: Nei.)

(Forseti (KLM): Hljóð í þingsal.)

(JónG: Nei, það er ekki það sem við vorum að ræða hér …)

Ef gjammarar í þingsal geta ekki sætt sig við það að menn vitni í það sem gjammað er þá verða þeir að halda munn. (Gripið fram í.)(Forseti hringir.)

Virðulegi forseti.

(Forseti (KLM): Forseti vill biðja um hljóð í þingsal annars neyðist hann til að fresta þessum fundi.)

(JónG: Samfylkingarspuninn.)

Var það ekki beiðni stjórnarmeirihlutans að það yrði greitt fyrir framgangi þessa máls? Er hægt að fá að halda ræðu um þetta mál?

Virðulegi forseti. Það er auðvitað hægt að flytja ræður og í þá veru sem hv. þingmaður Jón Gunnarsson gjammaði um áðan, að réttindi flugmanna væru með einhverjum hætti annars eðlis vegna þess að þeir eru hátekjustétt. Ég hef ekki mikla samúð með þeim sjónarmiðum. Ég spyr á móti: Næst á dagskrá eru flugfreyjur sem eru ekki hátekjustétt. Á að taka af þeim réttindin til þess að fara í verkfall? Á að gera það fyrir fram? Hvaða skilaboð eru aftur? Má sú stétt lesa út úr lagasetningunni á Herjólf? Hvaða skilaboð geta forstjóri og yfirstjórn Icelandair lesið út úr lagasetningunni á Herjólf og lagasetningunni í dag í viðskiptum sínum við flugfreyjur? Það er einfaldlega ekki þannig að það sé hægt í lýðræðisríki að ljúka kjaradeilum hverri á fætur annarri með lagasetningu. Og ríkisstjórn sem hefur ekki kjaramálastefnu, hún getur ekki látið löggjöf koma í staðinn fyrir stefnu um frið á vinnumarkaði. Ríkisstjórn sem getur ekki skapað þjóðarsátt með eigin aðgerðum og haldið frið á vinnumarkaði, hún getur ekki leyst úr því stefnuleysi með löggjöf og með því að svipta fólk borgaralegum réttindum. Það er ekki hægt. Það er hægt í einstökum tilvikum að grípa til þess úrræðis sem löggjöf er sem neyðarúrræðis. En að nota það sem aðferð til þess að ljúka vinnudeilum hér gang í gang er ekki mögulegt.

Þess vegna kem ég að því enn og aftur því hér var rætt áðan og hæstv. ráðherra ræddi í framsöguræðu um ábyrgð launþega og ábyrgð þeirra við þær aðstæður sem nú eru. Hún er vissulega mikil, en ég segi þá á móti: Hver er ábyrgð ríkisvalds? Hver er ábyrgð ríkisvalds á því að fá gullið tækifæri til þess að skapa frið á vinnumarkaði út sitt kjörtímabil eins og þessi ríkisstjórn fékk 21. desember síðastliðinn? Og ekki bara klúðra því, heldur leggja sig í framkróka um það að tala ekki við aðila vinnumarkaðarins við hverja beygju á hverju götuhorni, við öll tækifæri að gæta þess að rækja engar skyldur um samráð sem við vitum að hingað til hefur verið forsenda þess að skapa frið á vinnumarkaði. Það er þess vegna sem ábyrgðin er í höndum ríkisstjórnarinnar á því ástandi sem upp er komið.

Ég verð að segja að það er dapurlegt að hér sé hvorki hæstv. forsætisráðherra né hæstv. fjármálaráðherra, ábyrgðarmenn þessarar uppnámsstefnu á vinnumarkaði, til þess að svara fyrir sínar gerðir.

Ég ætla ekki að taka ágreining minn við þá við hæstv. innanríkisráðherra, enda virði ég mjög framgöngu hennar í þessu máli og tel hana til mikils sóma.