stækkun hvalfriðunarsvæðis á Faxaflóa.
Virðulegur forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að hvalaskoðun sem atvinnugrein hefur vaxið gríðarlega á undanförnum árum. Það er einstaklega ánægjulegt að sjá hversu vel hún hefur dafnað og hversu mikilvæg hún er orðin sem þáttur í því að skaffa afþreyingu og vörur til að bjóða þeim sívaxandi fjölda erlendra ferðamanna sem hingað koma upp á ferðum sínum um Ísland. En það verður líka að geta þess að þessi mikilvæga atvinnugrein hefur vaxið svona gríðarlega, eins og hv. þingmaður rakti ágætlega, samhliða því að Íslendingar hafa veitt hval. Þessi vöxtur hefur orðið í greininni þrátt fyrir að legið hafi fyrir og verið öllum kunnugt og öllum ljóst að á sama tíma hafa Íslendingar stundað hvalveiðar.
Ég er þeirrar skoðunar og mínar væntingar standa til þess að þessar tvær atvinnugreinar, hvalveiðar og nýting sjávarafurða að öllu leyti í heild sinni og hvalaskoðun og önnur sú ferðaþjónusta sem við rekum, geti farið saman. Ég tel að við getum unnið málin þannig að slíkt eigi að vera mögulegt.
Ég tek undir áhyggjur Samtaka ferðaþjónustunnar vegna þess að það er ekki gott ef menn eru í átökum um þetta. En ég tel að við eigum að geta gert þetta þannig, og ég veit að unnið er að því að gera það, að bæði hvalaskoðun og hvalveiðar geti starfað saman vegna þess að báðar greinarnar eru til staðar. Eins og ég segi þá hefur hvalaskoðunin vaxið (Forseti hringir.) samhliða því að við höfum veitt hval.