143. löggjafarþing — 115. fundur,  15. maí 2014.

frestun verkfallsaðgerða Félags íslenskra atvinnuflugmanna gegn Icelandair ehf.

600. mál
[14:02]
Horfa

innanríkisráðherra (Hanna Birna Kristjánsdóttir) (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég vil af þessu tilefni þakka þingheimi fyrir að taka þetta frumvarp fljótt og örugglega á dagskrá og afgreiða það innan þeirra tímamarka sem mikilvæg voru. Það skiptir máli.

Ég tek undir með þeim sem hafa sagt að hér er á ferðinni algjört neyðarúrræði og eitthvað sem við viljum sannarlega ekki að sé reglulegur viðburður á vettvangi þingsins. Hér er því ekki um að ræða neina stefnu núverandi ríkisstjórnar, eins og einhver hefur talað um, heldur aðgerð sem verður að grípa til vegna mjög brýnna almannahagsmuna.

Ég vona innilega að það verði algjört undantekningartilvik að til þess þurfi að koma en vildi nota tækifærið og þakka þingheimi fyrir að taka vel og örugglega á málinu.