frestun verkfallsaðgerða Félags íslenskra atvinnuflugmanna gegn Icelandair ehf.
Frú forseti. Verkföll eiga alltaf að vera þrautalending. Það fer enginn í verkfall að gamni sínu. Ég spyr mig hvort hv. Alþingi eigi að vera með mælistiku á það hvaða verkföll eigi að ganga sinn veg og fá lendingu á milli viðsemjenda og hvenær rétt sé að grípa inn í verkföll. Er það okkar hérna að vega það og meta? Eigum við að horfa til þess hvort verið sé að berjast fyrir láglaunahópa, millitekjuhópa eða hálaunahópa? Hvar eigum við að lenda?
Eigum við þá yfir höfuð að taka upp og meta hverjir eigi að hafa verkfallsrétt? Ef þessir aðilar hafa verkfallsrétt hlýtur sá réttur að gilda yfir alla hvar sem þeir eru og hvort sem þeir hafa samúð almennings eða ekki.
Þess vegna tel ég að (Forseti hringir.) við megum ekki ganga þann veg að vera eitthvert færiband hér til að grípa inn í samninga aðila á vinnumarkaðnum.