frestun verkfallsaðgerða Félags íslenskra atvinnuflugmanna gegn Icelandair ehf.
Virðulegi forseti. Með þeirri ákvörðun ríkisstjórnarmeirihlutans að setja lög á kjaradeilu í Herjólfsmálinu fyrir nokkrum vikum síðan hófst óheillaþróun. Fyrirtækjum í samgöngum voru þá send þau skýru skilaboð að þau yrðu skorin úr snörunni og þau gætu bara beðið og þyrftu ekki að taka þátt í eðlilegum kjarasamningum. Við erum núna að sjá uppnám á vinnumarkaði sem er bein afleiðing af kjaramálastefnu ríkisstjórnarinnar og misskiptingarstefnu hennar og þeirri skattstefnu sem birtist í því að létta byrðum af ríkasta fólkinu og flytja þær yfir á meðaltekjufólk og lágtekjufólk. Við sjáum hér líka hvað það kostar þegar ríkisstjórnin neitar að taka þátt í skynsamlegum aðgerðum eins og verkalýðshreyfingin óskaði eftir fyrir áramót, að létta skattbyrði þeirra sem minnst hafa milli handanna. Það er óhjákvæmilegt að standa ekki að þessari lagasetningu við þessar aðstæður jafnvel þótt almannahagsmunir séu vissulega fyrir hendi í þessu máli vegna þess hvernig (Forseti hringir.) tildrögin eru.