frestun verkfallsaðgerða Félags íslenskra atvinnuflugmanna gegn Icelandair ehf.
Frú forseti. Þegar beita á lögbundnu ofbeldi, og þessi lög eru það, gegn stjórnarskrárvörðum réttindum fólks verður að gæta meðalhófs. Í þessu tilfelli sýnist okkur ekki svo vera. Ekki er búið að reyna til þrautar allar aðrar leiðir en að ganga til lagasetningar, það er eitt. Það verða líka að vera mjög ríkar ástæður fyrir því að fara þessa leið og í þessu tilfelli hafa dómstólar dæmt í miklu alvarlegra máli og sagt að það þurfi að vera til staðar ríkir almannahagsmunir og efnahagsleg vá. Þessi tólf klukkustunda verkföll valda ekki efnahagslegri vá. Þeir eru ekki ríkir almannahagsmunir. Þess vegna munu Píratar greiða atkvæði gegn þessu máli.