143. löggjafarþing — 116. fundur,  15. maí 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[15:18]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég deili reyndar ekki með þingmanninum því trausti sem hún hefur á Kjarnanum sem heimild. En það kom fram í gær, í ræðu formanns Bjartrar framtíðar, hv. þm. Guðmundar Steingrímssonar, að á Íslandi væri ekki lengur sviðin jörð og því væri ekki þörf á aðgerðum eins og þessum lengur, þær væru frekar til skaða en hitt. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann deili þessari skoðun með formanni sínum, hvort hér þurfi að vera sviðin jörð til þess að gripið sé til ráðstafana til að hjálpa heimilum í landinu og koma til liðs við þau. Þarf að vera sviðin jörð hér, hv. þingmaður, til að við aðstoðum heimilin í landinu að mati Bjartrar framtíðar?