leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir afskaplega fróðlega ræðu og yfirgripsmikla. Hv. þingmaður ræddi um árið 1983, margt sem var sambærilegt þá því sem gerist núna, og þá hugmynd að umfram verðbólguskot eða við efnahagsáföll deili lánveitendur og lántakendur tjóninu með sér, þessum forsendubresti, að það sé í raun þeirra beggja. Það eru meira að segja til hagfræðikenningar sem styðja þetta. Joseph Stiglitz hefur til dæmis skrifað grein sem heitir „Super Chapter 11“ sem ég veit ekki hvort hv. þingmaður hefur lesið. Þar lýsir hann því að einmitt í fasteignalánasamningum ætti að vera ákvæði um efnahagsáfall, það væri öllum í hagkerfinu til hagsbóta að í samningnum væri force majeure-ákvæði sem segði: Ef slíkt efnahagsáfall kemur sem veldur því að allar eignir í hagkerfinu tapa einhverju verðgildi, hvers vegna ættu þá ekki líka skuldakröfur að tapa verðgildi sínu? Af hverju ættu þær einar að halda sínu verðgildi? Þær munu íþyngja öllum ef þær eru ekki allar lækkaðar á línuna.
Hans hugmynd er þessi klásúla og í henni sé gerðardómur sem segi að allar skuldir í landinu skuli lækka um 10%, það sé okkur öllum fyrir bestu. Hvað finnst hv. þingmanni um þetta? Mig langar aðeins að heyra hvernig þetta mundi leggjast út.