143. löggjafarþing — 116. fundur,  15. maí 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[18:11]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég spurði tveggja spurninga, þær voru báðar tiltölulega einfaldar. Hvorugri þeirra var svarað. Ég skal endurtaka þær.

Fyrri spurningin var þessi: Hefði ekki verið rétt á sínum tíma, þegar skuldir föllnu bankanna voru seldar á verulegum afslætti, að þeir sem þar voru undir, heimilin í landinu, sem skulduðu þessa peninga, fengju í einhverju notið þess að skuldir þeirra voru seldar á afslætti? Seinni spurningin var: Ef enn er hægt að leyfa heimilum að njóta þess að skuldir þeirra voru afskrifaðar að hluta til, er þá ekki rétt að gera það? Er ekki rétt að leyfa heimilunum að njóta þess í einhverju, þó ekki væri nema að hluta, að skuldir þeirra voru afskrifaðar? Eða á að gefa nýju bönkunum tækifæri til þess og þrotabúunum að innheimta upp í topp það sem var keypt á afslætti á kostnað heimilanna í landinu?

Svo tel ég rétt að bæta við, af því hv. þingmaður lýsir þeirri skoðun sinni hér sem hefur svo sem verið gegnumgangandi, sérstaklega á síðasta kjörtímabili, í þeim flokki sem hún tilheyrir, að þeir skattar sem ekki eru lagðir á séu gjöf til þeirra sem ekki eru skattlagðir — hvers vegna gaf hv. þingmaður og félagar hennar á síðasta kjörtímabili slitabúunum 150 milljarða kr.? Ef þetta var alltaf almannafé, ef þetta var alltaf eitthvað sem átti að fara í ríkissjóð og nota í hin ýmsu verkefni, hvers vegna var það ekki gert? Hvers vegna var síðasta ríkisstjórn stöðugt að skera niður þar sem síst mátti en láta í staðinn slitabúunum eftir á kjörtímabilinu 150 milljarða?

Ef tími gefst til mætti hv. þingmaður benda mér á það hvar núverandi ríkisstjórn hefur skorið niður þar sem síst skyldi. Raunin er sú að núverandi ríkisstjórn hefur aukið til mikilla muna framlög til félagsmála (Forseti hringir.) og til heilbrigðismála. Þau eru nú meiri en þau voru nokkurn tímann í tíð síðustu ríkisstjórnar þrátt fyrir hallalaus fjárlög.