leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.
Virðulegur forseti. Ég verð að viðurkenna að ég mun alls ekki geta rökrætt þetta mál á tveimur mínútum við hæstv. forsætisráðherra. Mér skilst að hann sé að tala um þrotabúin og mat á eignunum. Þá voru lánin til heimilanna undir, en það voru líka mörg önnur lán undir. Bráðabirgðamatið var því meðaltalsmat ef ég man þetta rétt. Ég get ekkert svarað því hvort það hafi virkilega verið möguleiki að grípa þar upp úr grjótinu peninga til þess að deila út til heimilanna.
Ég tel hæstv. forsætisráðherra einfalda þetta mál og drepa því á dreif og fá fólk til þess að horfa fram hjá því óréttlæti sem hann stendur fyrir með þessu skuldaniðurfellingarfrumvarpi sínu.
Höldum okkur við nútíðina, hæstv. forsætisráðherra, og mátum aðgerðir hæstv. ríkisstjórnar við stöðuna eins og hún er í dag. Ég get bent á niðurskurð sem ég var ósátt við og ég veit að bitnaði á ungmennum landsins. Það er t.d. niðurskurður í menntamálum og niðurskurður til þróunarstarfa (Gripið fram í.) í framhaldsskólum landsins. (SII: Hjálpartæki.) Þetta veit hæstv. forsætisráðherra. Síðan hafa allar gjaldskrár í heilbrigðiskerfinu verið hækkaðar og sérstaklega (Forsrh.: Það er ekki niðurskurður til menntamála.) gjöld til þeirra sem þurfa á hjálpartækjum að halda. Fatlaða einstaklinga, sem byggja lífsgæði sín á þeim hlutum, munar svo sannarlega um 5–10 þús. kr. á mánuði sem þessar hækkanir leggja á þá.
Hæstv. forsætisráðherra þarf að horfast í augu við það að aðgerðir eru óréttlátar og ýta undir ójöfnuð (Forseti hringir.) og mismunun í samfélaginu. (Forsrh.: Betra að svelta alla?)