143. löggjafarþing — 116. fundur,  15. maí 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[20:44]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vona að við sjáum aftur og aftur meira af 3,7% hagvexti og ég vona að við sjáum aftur og aftur ekki nema rúmlega 2% verðbólgu eða jafnvel minna. Ég vona að við sjáum aftur og aftur lækkandi atvinnuleysi og 4 þúsund ný störf á einu ári. (Gripið fram í.) Það eru reyndar takmörk fyrir því hvað við getum séð slíkt oft aftur og aftur en ég vona að það verði að minnsta kosti í nokkur skipti í viðbót.

Gjaldeyrishöft eru ekki einsdæmi hér á Íslandi. Evrulandið Kýpur er í gjaldeyrishöftum sem eru miklu harðari en hér og þó voru þar innstæður í bönkum gerðar upptækar að stórum hluta og landið eftir það skilið eftir í höftum sem menn vita ekki hvernig þeir eiga að komast út úr. Að halda því fram að þessi ríkisstjórn sé að rækta og næra höftin er svolítið hæpið í ljósi þess að svigrúmið er þegar byrjað að myndast með skattlagningu slitabúanna, (Forseti hringir.)slitabúa sem voru einmitt ræktuð og nærð mjög vel á háum vöxtum í tíð síðustu ríkisstjórnar og þurftu ekki að borga neina skatta.