143. löggjafarþing — 116. fundur,  15. maí 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[20:51]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það hvernig staðið var að stofnun nýju bankanna var iðulega til umræðu á þessum vettvangi og í stjórnmálum almennt á þessum tíma. Menn tókust á um hvaða meginleið ætti að fylgja. Það er ekki hægt að skella þessu öllu á Fjármálaeftirlitið og segja: Síðasta ríkisstjórn kom ekkert að þessum málum.

Hvað varðar hins vegar mikilvægi þess að geta reiknað skatta þá er það alveg rétt. Við sáum það á tilraunum síðustu ríkisstjórnar til að reikna veiðigjöld með formúlu sem gekk ekki upp. Með því er ekki sagt að menn eigi bara að gefast upp. Ef til staðar er réttmæt þörf fyrir skattgreiðslur þá geta menn ekki látið það stoppa sig að það sé of flókið að reikna, þá verða menn bara að klára að vinna það dæmi. Í þessu tilviki, eins og ég gat um, tók það mjög langan tíma. En ég skal ekkert halda áfram að velta hv. þingmanni upp úr því. Ég er ekki að fullyrða að hann hafi gefið slitabúunum 150 milljarða. (Gripið fram í.) Ég er bara að segja að miðað við þá viðmiðun sem hv. þingmaður leggur (Forseti hringir.) oft til grundvallar, að þeir skattar sem menn taka ekki en hafa fengið hugmynd að séu gjöf, hafi menn verið að gefa 150 (Forseti hringir.) milljarða.