143. löggjafarþing — 116. fundur,  15. maí 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[20:55]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég skildi satt best að segja ekki alveg spurninguna en ég geri ráð fyrir að hv. þingmaður sé að tala um gögn tengdra aðila vegna þess að hér eru heimilin notuð sem viðmiðun og þá litið til hjóna. Ég veit ekki hvað annað hv. þingmaður getur verið að tala um.