143. löggjafarþing — 117. fundur,  15. maí 2014.

veiðigjöld.

568. mál
[23:10]
Horfa

Björt Ólafsdóttir (Bf) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Pétri H. Blöndal fyrir að árétta fyrri spurningu. Svo að ég segi það alveg skýrt: Nei, mér finnst það ekki réttlátt að þeir sem keyptu kvóta fyrir lán standi í raun betur að vígi nú en hinir sem keyptu fyrir eigið fé. Það er ekki réttlátt að mínu mati, enda er ég ekki fylgjandi skuldaniðurfellingum yfir höfuð.

Hvað varðar lækkun gjalda með þeirri forsendu sem þingmaðurinn nefnir réttilega, ef ég skil meirihlutaálitið rétt, að treysta á auknar veiðar, þá er það mikil spámennska, það er það. Við höfum ekkert fast í hendi með það, að sjálfsögðu ekki. Ég vil bara árétta, eins og ég sagði í ræðu minni, að ég held að þessi aðferðafræði sé ekki góð, að áætla eitthvað fram í framtíðina, út frá, eins og við höfum verið að gera, gömlum gögnum, það segir kannski eitthvað. Við vitum hverju Hafró mælir með eða leyfir að veiða, en við vitum ekki hvað kemur samt upp úr sjónum, við getum ekki vitað það.

Ég held að þessi gjaldtaka byrji á öfugum enda. Ég held við eigum að snúa henni á hvolf og bara hafa þetta eins og hjá öðrum fyrirtækjum. Mig langar að skoða það betur að láta þessa gjaldtöku koma í gegnum skattkerfið. Ég verð að segja það alveg eins og er. Mér finnst það hljóma betur en þó að óskoðuðu máli.