143. löggjafarþing — 118. fundur,  16. maí 2014.

málefni innflytjenda.

517. mál
[12:12]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Þórunn Egilsdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti meiri hluta velferðarnefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda, nr. 116/2012.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ingibjörgu Broddadóttur frá velferðarráðuneyti.

Líkt og fram kemur í greinargerð er í velferðarráðuneytinu unnið að sameiningu Fjölmenningarseturs, Jafnréttisstofu og réttindagæslu fatlaðs fólks í eina stjórnsýslustofnun á sviði jafnréttismála. Er því nauðsynlegt að ráðherra verði veitt heimild til að setja forstöðumann yfir Fjölmenningarsetur þar til þeirri vinnu lýkur. Meiri hlutinn bendir á að samþykkt frumvarpsins felur ekki í sér skuldbindingu til framtíðar um sameiningu áðurnefndra stofnana.

Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Fjarverandi við afgreiðslu málsins voru hv. þingmenn Elín Hirst og Páll Jóhann Pálsson.

Undir þetta rita ásamt þeirri sem hér stendur Ásmundur Friðriksson, Vilhjálmur Bjarnason, Ásmundur Einar Daðason og Unnur Brá Konráðsdóttir.