143. löggjafarþing — 118. fundur,  16. maí 2014.

losun og móttaka úrgangs frá skipum.

376. mál
[12:30]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Höskuldur Þórhallsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lagaákvæðum er varða losun og móttöku úrgangs frá skipum. Þetta er innleiðing á EES-reglum.

Nefndinni bárust umsagnir frá Hafnasambandi Íslands, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Landssambandi íslenskra útvegsmanna og Samtökum fiskvinnslustöðva, Samtökum verslunar og þjónustu, umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar og Umhverfisstofnun. Nefndin fékk auk þess fjölmarga aðila á fundi sína.

Með frumvarpinu eru gerðar þær kröfur að komið verði upp aðstöðu fyrir móttöku úrgangs frá skipum í öllum höfnum á landinu eða að rekstraraðilar hafna tryggi að þjónusta sé til staðar fyrir móttöku á sorpi og skólpi frá skipum. Að sama skapi eru lagðar þær skyldur á skipstjóra allra skipa sem koma til hafnar að skila öllum úrgangi frá skipi í aðstöðu fyrir úrgang frá skipum í höfn, þó með þeim undantekningum sem getið er um í 2. mgr. a-liðar 4. gr. frumvarpsins og 3. mgr. c-liðar 4. gr. frumvarpsins. Markmið frumvarpsins er hið sama og meginmarkmið tilskipunarinnar, þ.e. að koma í veg fyrir að skip losi úrgang í hafið og draga þar með úr mengun hafsins.

Í umfjöllun um málið kom fram að umsagnaraðilar telja mál er varða losun og móttöku úrgangs frá skipum nú þegar í góðum farvegi meðal flutningsfyrirtækja og telja fyrirtækin hafa tileinkað sér ábyrga úrgangsstjórnun. Ólögleg losun á úrgangi frá skipum í sjó sé ekki vandamál og keypt sé þjónusta af til þess bærum aðilum sem sjái um móttöku og losun úrgangs.

Nefndin tekur undir með umsagnaraðilum um að gæta þurfi að ákvörðunum einstakra hafna eða hafnasamlaga um gjaldtöku og að tryggja þurfi að gjaldtöku sé stillt í hóf, að hún sé sanngjörn, gegnsæ og endurspegli kostnað frekar en að hún verði nýtt til óhóflegrar tekjuöflunar.

Nefndin leggur áherslu á að gætt sé að því að nýttar séu þær undanþágur sem tilskipunin veitir, samanber að Umhverfisstofnun geti veitt undanþágu fyrir skip í áætlunarsiglingum sem hafa reglulega viðkomu í höfnum og sýna fram á trygga losun úrgangs.

Þá var athygli nefndarinnar beint að nokkrum atriðum sem umsagnaraðilar töldu að bæta mætti úr í frumvarpinu og tók nefndin undir nokkur þeirra.

Bent var á að skilgreiningin á mengandi efnum í frumvarpinu sé of þröng þar sem lög nr. 33/2004, um varnir gegn mengun hafs og stranda, taka til mun fleiri mengandi efna en viðaukar I og II við MARPOL gilda um. Einnig stangast skilgreiningin á við skilgreiningu á mengun í lögunum, samanber 9. tölulið 3. gr. laga nr. 33/2004 sem vísað er til í b-lið 2. gr. frumvarpsins. Nefndin fellst á þetta og leggur því til að í stað skilgreiningar á mengandi efnum verði skilgreiningu á mengun í núgildandi lögum breytt.

Nefndin telur mikilvægt að ekki sé þrengt að samstarfi aðila og möguleika fyrirtækja til að bæta sig með íþyngjandi kostnaði og takmörkunum og tekur því undir tillögu Samtaka fiskvinnslustöðva um að bætt verði við skipum sem þjónusta fiskeldi í upptalningu undanþágutilvika 1. mgr. c-liðar 4. gr. og 1. mgr. 8. gr. frumvarpsins.

Í 5. gr. frumvarpsins kemur fram að hafnaryfirvöld skulu sjá til þess að viðeigandi upplýsingar berist Umhverfisstofnun, svo sem tilkynningar um úrgang og farmleifar auk yfirlits yfir magn og tegund þess úrgangs sem skal skilað. Samantekt á framangreindum upplýsingum skal skilað til Umhverfisstofnunar fyrir 1. mars ár hvert. Umsagnaraðilar bentu á að eðlilegt þætti að upplýsingar um magn og tegund úrgangs og farmleifa sem skyldi skilað ætti einnig að senda til heilbrigðisnefnda viðkomandi sveitarfélaga. Þessar upplýsingar væru nauðsynlegar fyrir sveitarfélög til að halda utan um magn úrgangs sem fellur til í sveitarfélagi þar sem sveitarfélög eiga að sjá um að starfræktar séu móttöku- og söfnunarstöðvar fyrir úrganginn. Einnig var bent á að ákvæðið væri ekki nægilega skýrt. Nefndin tekur undir þessi sjónarmið og leggur til breytingu á 5. gr. frumvarpsins þess efnis.

Þar sem hafnaryfirvöld þurfa tíma til að koma á nýju verklagi í samræmi við ákvæði frumvarpsins telur nefndin rétt að taka tillit til þess varðandi tímasetningu á gildistöku laganna og leggur til að þau taki gildi 31. desember 2014.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem er að finna í nefndarálitinu. Ég held að það sé óþarfi að fara sérstaklega yfir breytingartillögurnar í álitinu þar sem ég hef reifað þær. Undir þetta álit skrifa fulltrúar í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis: hv. þm. Höskuldur Þórhallsson, formaður og framsögumaður, hv. þm. Katrín Júlíusdóttir, hv. þm. Haraldur Einarsson, hv. þm. Brynjar Níelsson, hv. þm. Katrín Jakobsdóttir og hv. þm. Brynhildur S. Björnsdóttir.