143. löggjafarþing — 118. fundur,  16. maí 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[13:36]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við í Samfylkingunni viljum taka á raunverulegum skuldavanda. Þess vegna höfum við stutt álagningu bankaskattsins og þess vegna studdum við hér í sumar breytingu á lögum til að heimila Hagstofunni að afla upplýsinga um umfang vandans til að tryggja að aðgerðir skiluðu árangri. Þannig höfum við reynt að tryggja að bæði séu peningar til reiðu og upplýsingar til að hægt sé að takast á við vandann og ráðstafa peningum rétt.

Ríkisstjórnin leggur núna til útfærslu sem er ekki hægt að samþykkja. Ef þetta frumvarp verður samþykkt verður skuldavandinn áfram til staðar en engir peningar verða eftir til að leysa úr honum. Það verða engin tækifæri til að losa fólk úr erfiðum vanda.

Við leggjum fram tillögur við meðferð þessa máls nú við 2. umr. til að draga úr verstu ágöllum málsins en munum engan kost annan eiga en að greiða atkvæði gegn málinu ef þeim verður hafnað.