143. löggjafarþing — 118. fundur,  16. maí 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[13:40]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Ég fagna því að við séum komin á þann stað að greiða nú atkvæði um þetta stóra og mikilvæga mál. Við stóðum hér allt síðasta kjörtímabil og leituðum leiða til þess að koma til móts við skuldsett heimili. Núverandi ríkisstjórn hefur lagt fram sín stóru mál varðandi þetta málefni sem allir hér inni vita að kosið var um í síðustu kosningum og ég tel að við eigum að fagna því að við séum komin á þennan stað.

Ég styð þetta mál.