143. löggjafarþing — 118. fundur, 16. maí 2014.
leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.
485. mál
Hæstv. forseti. Ég fagna því að málið sé komið til atkvæðagreiðslu og ég fagna því að fjármunir verði fengnir í þessar skuldaleiðréttingar með því að skattleggja þrotabú gömlu bankanna til að leiðrétta þann forsendubrest sem varð hér.
Ég fagna því að þessi leið sé farin og segi að sjálfsögðu já.