143. löggjafarþing — 118. fundur, 16. maí 2014.
leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.
485. mál
Virðulegi forseti. Hér greiðum við atkvæði um mikið réttlætismál, sanngirnismál og jafnræðismál. Við vitum öll að með neyðarlögunum voru ákveðnum hópi fólks tryggðar allar innstæður. Hæstiréttur greip inn í ólöglegu gengislánin og nú er loksins verið að leiðrétta forsendubrestinn sem einstaklingar með verðtryggð húsnæðislán urðu fyrir á haustdögum 2008.
Virðulegi forseti. Þessi ríkisstjórn vinnur fyrir heimilin og fólkið í landinu. Ég óska okkur öllum til hamingju með daginn.