143. löggjafarþing — 118. fundur,  16. maí 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[14:05]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Í umræðunni síðustu daga hafa ýmsar mögulegar leiðir til skuldaleiðréttingar verið ræddar. Aðferðin sem við greiðum atkvæði um nú er almenn aðgerð og vel útfærð sem slík.

Við höfum aðrar aðferðir til að vinna að félagslegu jafnrétti og eigum að gera það, en ég segi já við þessari tillögu.