143. löggjafarþing — 118. fundur,  16. maí 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[14:06]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Með þessari aðgerð er komið til móts við skuldsett heimili með verðtryggð fasteignaveðlán. Aðgerðin er almenn og ásamt séreignarsparnaðarleiðinni mun hún ná til um 100 þús. heimila.

Það sem er hvað mikilvægast í þessu er að þessar aðgerðir eru án þess að fórna sjálfbærni og stöðugleika við stjórn ríkisfjármála. Ég fagna þessari efnahagslegu almennu aðgerð.