leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.
Hæstv. forseti. Hér á sér stað umræða sem hefði átt að eiga sér stað við umfjöllun málsins í þingsal en þar hafa mjög margir verið fjarverandi sem nú koma fram með skoðanir sínar.
Ég ætla aðeins að segja að það er rætt um réttlæti, sanngirni og forsendubrest. Íslensk heimili eiga rétt á því að geta búið við húsnæðisöryggi í leigu- eða eignarhúsnæði og notið öruggrar framfærslu. Um það snýst réttlætið, sanngirnin og leiðréttingin á þeim forsendubresti sem varð við hrunið.
Því miður leysa þær tillögur sem hér koma fram ekki þennan vanda. Hér birtist eins og í fjölmörgum málum hjá nýrri ríkisstjórn grímulaus forgangsröðun í þágu þeirra sem hafa það betra í samfélaginu á kostnað þeirra sem hafa það verst. Mér þykir dapurlegt að við aðstæður þar sem ég hefði gjarnan viljað nota töluverðan hluta af þeim peningum sem hér er verið að ráðstafa til að hjálpa því fólki sem varð fyrir alvarlegustu áföllum við hrunið sé það því miður ekki gert. Það er verið að ráðstafa stórum hluta af peningunum til þeirra sem þurfa ekkert á þeim að halda. (Forseti hringir.)
Þess vegna get ég því miður ekki stutt þetta mál.