143. löggjafarþing — 118. fundur,  16. maí 2014.

veiðigjöld.

568. mál
[14:52]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Hér er verið að vinna lagfæringar á lögum um veiðigjöld sem eru að hluta til frá sjálfstæðismönnum og framsóknarmönnum árið 2007, sem lögðu fyrst á veiðigjöld, og svo frá okkur í síðustu ríkisstjórn sem lögðum á sérstakt veiðigjald þar sem við ætluðum að finna hóflegt og sanngjarnt gjald af auðlindarentunni í sameiginlegan sjóð okkar landsmanna.

Hér er verið að vinna að nokkrum jákvæðum og góðum breytingum en líka lækkun, eins og komið hefur fram. Hér er t.d. verið að lækka hið svokallaða frítekjumark sem skemmir mest fyrir þeim sem minnst hafa og því erum við á móti. Ég tek undir það sem sagt hefur verið hér, við vinnu nefndarinnar og umræðu í gær sýnist mér og veit að við erum hér á leið til að finna sanngjarnari stofn. Ég hef talað fyrir því og er þeirrar skoðunar að við þurfum að finna rauntímaupplýsingar sem taki bæði til þess að gefa meiri veiðileyfagjöld til ríkissjóðs ef vel gengur og hátt verð er á mörkuðum (Forseti hringir.) en að sama skapi lækki þau ef erfiðleikar eru.