143. löggjafarþing — 118. fundur,  16. maí 2014.

veiðigjöld.

568. mál
[14:53]
Horfa

Björt Ólafsdóttir (Bf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Veiðigjöldin hafa alltaf verið þrætuepli en flestir virðast sem betur fer vera komnir á það að sjávarútvegurinn skuli greiða sanngjarnt gjald fyrir afnot af auðlindinni. Svo er það spurningin hvað er sanngjarnt, hvar línan liggur og hvar rentan er í réttlátu jafnvægi við afkomu fyrirtækjanna.

Afkomustuðlarnir sem hér er lagt upp með eru skref í rétta átt til að gera gjaldtökuna sem skýrasta, en upp á það hefur vantað. Vinna atvinnuveganefndar hefur um margt verið góð en ég verð að lýsa yfir vonbrigðum mínum með að hafa ekki fengið aðgang að gögnum sem þó eru til um núverandi skiptingu á veiðileyfagjöldum. Ef þörf er á lækkun gjaldanna þarf ég að sjá betur forsendurnar fyrir því. Ég fékk neitun frá ráðuneytinu því að í þessum upplýsingum kemur auðvitað fram hverjir fá afslætti vegna skulda og það þykir viðkvæmt. Þetta er að mínu mati óviðeigandi, lagasetningin um gjöldin er framkvæmd hér á Alþingi en ekki í ráðuneytinu og við verðum að vita hvað við erum að fást við. Þrátt fyrir góða vinnu Hagfræðistofnunar HÍ og veiðigjaldsnefndar munum við í Bjartri framtíð (Forseti hringir.) sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu vegna þess að gjaldtakan er enn óskýr eftir tegundum, útgerðarformum og afkomu.