143. löggjafarþing — 118. fundur,  16. maí 2014.

veiðigjöld.

568. mál
[14:57]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ríkissjóður er mjög skuldsettur, skattar á fólk og fyrirtæki eru háir og innviðir samfélagsins eru veikir, sér í lagi heilbrigðiskerfisins. Undir þeim kringumstæðum er það slæm hagstjórn að setja í forgang að létta undir með þeim geira atvinnulífsins sem hefur komið hvað best út úr hruninu. Það er slæm hagstjórn. Við greiðum atkvæði gegn þessu.