efling skógræktar sem atvinnuvegar.
Virðulegi forseti. Við fjöllum hér um tillögu til þingsályktunar um eflingu skógræktar sem atvinnuvegar og sameiningu stjórnsýslueininga á sviði skógræktar og landgræðslu. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund fjölda gesta, bæði sérfræðinga á þessu sviði, fulltrúa opinberra stofnana og nefndarálit frá enn fleiri félögum, svo sem sveitarfélögum.
Í tillögunni felst ályktun Alþingis um að ríkisstjórninni verði falið að efla skógrækt á Íslandi sem arðsaman atvinnuveg með eftirtöldum aðgerðum: Í fyrsta lagi að stórefla hagnýtar rannsóknir og þróunarstarf í skógrækt. Í öðru lagi að færa Skógrækt ríkisins, Landgræðslu ríkisins og landshlutaverkefni í skógrækt í eina stjórnsýslueiningu. Í þriðja lagi að semja frumvarp til laga sem gildi um bæði skógrækt og landgræðslu. Í fjórða lagi að móta rammaáætlun um starfsumhverfið með þátttöku bænda, landeigenda og sérstakra skógræktarsjóða.
Við umfjöllun um málið kom fram ánægja með tillöguna og var bent á að skógrækt væri ný atvinnugrein sem þyrfti að hlúa að enda fylgdu henni mörg tækifæri. Einnig var bent á að huga mætti að því að skoða lög um náttúruvernd í samhengi við lög um skógrækt og lög um landgræðslu sem og að endurskoða þyrfti lögin um skógrækt sem eru frá árinu 1955.
Fram kom fyrir nefndinni mikilvægi þess að skilgreina vel þau landsvæði sem henta til skógræktar og að þörf sé á meiri náttúrufarsgreiningu hér á landi til að samræma ýmiss konar landnotkun.
Meiri hlutinn leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
Undir þetta nefndarálit skrifa Jón Gunnarsson, Ásmundur Friðriksson, Björt Ólafsdóttir, Kristján L. Möller, Páll Jóhann Pálsson, Þorsteinn Sæmundsson og Þórunn Egilsdóttir.