143. löggjafarþing — 118. fundur,  16. maí 2014.

rannsóknir á umfangi og nýtingarmöguleikum sjávarorku.

293. mál
[17:20]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegi forseti. Við fjöllum hér um nefndarálit með breytingartillögu um tillögu til þingsályktunar um rannsóknir á umfangi og nýtingarmöguleikum sjávarorku.

Nefndin hefur fjallað um málið. Samsvarandi tillaga var fyrst flutt á Alþingi á 139. löggjafarþingi. Málið var að nýju lagt fram á 140. löggjafarþingi og bárust atvinnuveganefnd þá umsagnir frá ýmsum stofnunum og sérfræðingum. Málið var síðan endurflutt á 141. löggjafarþingi og þá bárust umsagnir frá sömu aðilum. Það er því verið að leggja þetta mál fram í fjórða sinn.

Þáverandi atvinnuveganefnd afgreiddi tillöguna til síðari umræðu með breytingartillögu þann 14. mars 2013. Í áliti nefndarinnar kom fram að mikil sjávarorka væri að öllum líkindum óbeisluð við strendur landsins og að mögulega væri þar orkukostur sem væri hagkvæmt að virkja. Vísað var til þess að um stöðuga og fyrirsjáanlega orku væri að ræða. Einnig var bent á í álitinu að tækni til nýtingar sjávarorku væri í sífelldri þróun og yrði hagkvæmari með tímanum.

Þáverandi atvinnuveganefnd lagði til eina efnislega breytingu á tillögugreininni sem laut að því að halda aðskildum annars vegar þeim atriðum sem sjálf tillagan snýr að, þ.e. að meta umfang og nýtingarmöguleika sjávarorku, og hins vegar hvaða stefnu beri að móta hvað tækniþróun hér á landi varðar. Með öðrum orðum lagði nefndin til að í tillögugreininni væri ekki kveðið á um að mótuð yrði stefna um framgang tækniþróunar á þessu sviði. Bent var á í áliti nefndarinnar að nærtækt væri fyrir Íslendinga að vera í samstarfi við erlenda aðila hvað varðar hönnun og tækniþróun á þessu sviði.

Nefndin tekur undir álit þáverandi atvinnuveganefndar og leggur til að tillagan verði samþykkt með breytingartillögu.

Undir þetta álit skrifa hv. þingmenn Jón Gunnarsson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Björt Ólafsdóttir, Kristján L. Möller, Páll Jóhann Pálsson, Þorsteinn Sæmundsson og Þórunn Egilsdóttir.