143. löggjafarþing — 118. fundur,  16. maí 2014.

þjóðfáni Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið.

13. mál
[17:42]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Sigrún Magnúsdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir framhaldsnefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið, nr. 34/1944, með síðari breytingum. Nefndarálitið kemur frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.

Nefndin hefur fjallað um málið að nýju en það hefur ekki komið til 2. umr. í þingsal. Þess vegna brugðum við á það ráð þegar við sáum hvað við áttum stuttan tíma eftir af yfirstandandi þingi og fyrirséð að frumvarpið yrði ekki að lögum og ekki síst vegna þess að við urðum þess áskynja hjá hagsmunaaðilum, ekki síst í ferðaþjónustu og ýmsum framleiðslugreinum, að þoka þyrfti málinu eitthvað áleiðis. Vísa ég í umfjöllun í fyrra nefndarálit okkar á þskj. 916. Þess vegna leggur nefndin til, sem er nokkuð sérstakt hér, að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

Helgi Hjörvar og Valgerður Bjarnadóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins og Brynhildur Pétursdóttir, áheyrnarfulltrúi í nefndinni lýsti sig samþykka afgreiðslunni en undir framhaldsnefndarálitið rita Ögmundur Jónasson formaður, Sigrún Magnúsdóttir, Brynjar Níelsson, Birgitta Jónsdóttir, Karl Garðarsson, Pétur H. Blöndal og Willum Þór Þórsson.

Ég held að mjög mikilvægt sé að unnið verði áfram í málinu því að þetta er eitt af þeim snúnu málum sem allir hafa nokkuð miklar skoðanir á en mismunandi skoðanir og þar liggur hundurinn grafinn. Meiri hlutinn telur eðlilegt að fela ráðherra að útfæra fleiri atriði nánar en við gátum um í nefndarálitinu með reglugerð og að ráðherra sem fær þetta til meðhöndlunar muni þá hafa samráð við Staðlaráð Íslands við þá vinnu.

Ég verð að koma því hér að að við erum mjög í nefndarálitinu á þskj. 916 að breyta frumvarpinu í frjálsræðisátt. Að merkja með fána — það er eiginlega þrennt sem kemur til greina og hingað til hefur það verið aðallega gert ef um hefur verið að ræða innlent hráefni eða framleitt hér á landi en hönnunin þá ekki verið höfð með. En við leggjum að jöfnu þessa þrjá liði, þ.e. hönnun sem er náttúrlega hugverk, framleiðsla sé hér á landi og innlent hráefni sé nýtt. Ég vona sannarlega að það ráðuneyti sem fær þetta í hendur muni skoða þetta og ýta þessu úr vör. Fyrrverandi forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, var flutningsmaður að svipuðu frumvarpi en eins og ég gat um áður hefur það ekki komist áleiðis. Hagsmunaaðilar eru mjög áhugasamir og ég get ekki sagt annað en að ég vonist svo sannarlega til að hér verði aðeins unnin bragarbót á og málinu verði hreyft þannig að íslenskar vörur fái fánamerkingu því að við teljum að það verði mjög til hagsbóta fyrir okkar framleiðslugeira og okkur öllum til framdráttar að hægt verði að merkja vörur okkar með íslenskum fána. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)