143. löggjafarþing — 118. fundur,  16. maí 2014.

stimpilgjald.

585. mál
[17:47]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Ragnheiður Ríkharðsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Þetta frumvarp til laga um breytingu á lögum um stimpilgjald er flutt af efnahags- og viðskiptanefnd. Það er hér fram komið til að sníða af agnúa sem valda óvissu. Nefndin stendur einhuga að frumvarpinu og ég legg til að það verði samþykkt óbreytt.