143. löggjafarþing — 118. fundur,  16. maí 2014.

bygging nýs Landspítala.

10. mál
[18:34]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Ögmundur Jónasson var kannski ekki að beina til mín spurningu, en hann hreyfði sjónarmiði sem ég hef verið fylgjandi gegnum tíðina. Mér hugnast ekki og mér hefur ekkert sérstaklega hugnast einkaframkvæmdir. Ég hef þó verið sammála því eins og með Vaðlaheiðargöng þegar einkaframkvæmd getur gert það að verkum að hægt er að fara hraðar í framkvæmdina og hún er ódýrari fyrir ríkissjóð þegar upp er staðið. Það er grundvallarsjónarmiðið sem ég mun ganga út frá. Ég mun ganga út frá því í lokin hvað kemur sér best fyrir ríkissjóð, fyrir heilbrigðisstarfsmenn og sjúklingana í landinu.