143. löggjafarþing — 118. fundur,  16. maí 2014.

bygging nýs Landspítala.

10. mál
[18:35]
Horfa

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Þegar til álita kom að reisa nýtt fangelsi í einkaframkvæmd lét ég kanna líklegan kostnað af því. Það var talið að þar munaði hálfum milljarði hvað það yrði dýrara.

Hæstv. forseti. Það líður að lokum þessa þings. Af virðingu fyrir þingmönnum og einnig forseta þingsins sem mundi vilja blanda sér í umræðuna ef við hæfum umræðu um Vaðlaheiðargöng ætla ég að láta máli mínu lokið. [Hlátur í þingsal.]