séreignarsparnaður og ráðstöfun hans til greiðslu húsnæðislána og húsnæðissparnaðar.
Virðulegi forseti. Það er mjög ánægjulegt að við séum að klára þetta mál. Þetta er mjög gott mál. Það er afskaplega ánægjulegt að við séum að fara þá leið að hjálpa fólki að eignast í stað þess að hvetja fólk til að skulda því að þannig hefur húsnæðisstefnan í reynd verið á undanförnum áratugum. Gagnrýnislítið höfum við gengið þannig fram.
Það hlýtur líka að vera fagnaðarefni fyrir alla sem hafa áhuga á efnahagsmálum að hér erum við að stíga skref þar sem við erum að tappa af fjárfestingarþörf lífeyrissjóðanna. Það er fullkomlega óskiljanlegt að sumir hv. þingmenn komi hér hvað eftir annað, bendi jafnvel á það og segi í leiðinni að við séum að tapa svo miklum framtíðarskatttekjum og geri ráð fyrir hárri ávöxtun til allrar framtíðar þegar allir vita að það er erfitt fyrir lífeyrissjóðina núna í lokuðu hagkerfi að fjárfesta.
Þetta er skynsemismál, bæði í nútíð og til framtíðar, og sérstaklega ánægjulegt (Forseti hringir.) líka að sjá húsnæðissparnaðarreikninga inni í þessu máli.