143. löggjafarþing — 118. fundur,  16. maí 2014.

mótmæli gegn ofsóknum gegn samkynhneigðum í Úganda.

348. mál
[19:07]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég fagna því að þessi þingsályktunartillaga, sem flutt er af hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni og fimm öðrum þingmönnum úr öllum stjórnmálaflokkum, er komin hér til afgreiðslu. Það er ein af grunn- og meginstoðum íslenskrar utanríkisstefnu og hefur verið um langt skeið að berjast fyrir mannréttindum hvarvetna. Á grundvelli mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna frá 1948 er kveðið á um að mannréttindi séu algild og allir eigi að njóta þeirra jafnt. Þess vegna fagna ég því að þetta mál sérstaklega komi hér til afgreiðslu. Enda þótt mannréttindi séu allt of víða fótumtroðin er hér mál sem við eigum að láta okkur varða. Úganda er samstarfsland Íslands í þróunarsamvinnuáætlun okkar og það er mikilvægt að við látum rödd okkar heyrast í baráttu fyrir jöfnum rétti samkynhneigðra.