143. löggjafarþing — 119. fundur,  16. maí 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[20:36]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þessi tillaga og raunar líka tillögur hv. þm. Árna Páls Árnasonar fyrr í dag virðast byggjast á algjörum grundvallarmisskilningi og kannski á tvöföldum eða þreföldum misskilningi. Þessi aðgerð er ekki hugsuð sem styrkur eða ölmusa. Hún er hugsuð sem aðgerð til að skila því sem fólk á réttmæta kröfu á. Ef menn ætluðu að fara að ákveða að þessi ætti skilið að fá eitthvað en ekki hinn, þá fælist í því yfirlýsing um að þetta væri einhvers konar ölmusa, einhvers konar styrkur. Þannig eru þessar aðgerðir ekki hugsaðar.

Auk þess þarf hv. þingmaður ekki að hafa þær áhyggjur sem hann virðist hafa af því að einhver fái þarna greiðslur, einhver fjöldi, sem þurfi ekki á því að halda. Tölur ríkisskattstjóra sýna að mjög fáir eru með há lán og líka með miklar eignir, eðli málsins samkvæmt. Þannig að þar verða greiðslurnar mjög takmarkaðar. Hátekjufólk er hins vegar stundum með há lán, en það rekst þá í 4 millj. kr. þakið. Þannig að áhyggjur (Forseti hringir.) hv. þingmanns eru ástæðulausar og tillagan byggð á misskilningi.