143. löggjafarþing — 119. fundur,  16. maí 2014.

veiðigjöld.

568. mál
[21:05]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Það er einfaldlega slæm hagstjórn að forgangsraða lækkun á sköttum til greinar sem hefur fengið hvalreka eins og sjávarútvegurinn hefur fengið. Þegar hrunið varð og krónan lækkaði bættist hagur sjávarútvegsins meðan aðrir þurftu að þola lægra gengi krónunnar. Sama hvað mönnum finnst og hvort sem menn eru fullir af kosningaloforðum eða ekki er það einfaldlega slæm hagstjórn að forgangsraða skattalækkunum til útvegs, til greinar atvinnulífsins sem hefur fengið þennan hvalreka, meðan aðrir sitja hjá óbættir.