143. löggjafarþing — 119. fundur, 16. maí 2014.
veiðigjöld.
568. mál
Hæstv. forseti. Í þeirri tillögu sem formaður atvinnuveganefndar flytur hér er verið að setja inn í b-lið 5. gr. það orð sem ég gat um í morgun að vantaði og hafði fallið út vegna mistaka. Greinin er um afslætti á aflahlutdeildum vegna kvótakaupa undanfarin ár sem ég hef áður gert grein fyrir.
Hér er verið að bæta inn þessu „einungis“ þannig að nú er í greininni talað um einungis íslenskar aflaheimildir.
Það er til mikilla bóta og ég styð þessa tillögu.