143. löggjafarþing — 119. fundur, 16. maí 2014.
fiskeldi.
319. mál
Herra forseti. Ég geri hér aðeins grein fyrir breytingartillögu frá atvinnuveganefnd. Í henni felst tvennt, annars vegar eru númer greina í ákvæði til bráðabirgða III lagfærð þar sem nefndin bætti við nýjum ákvæðum fyrir 2. umr. málsins. Hins vegar var rætt um það í nefndinni að lögin yrðu endurskoðuð eins og fram kemur í nefndaráliti hennar. Hér með er lagt til að lögfest verði ákvæði til bráðabirgða við lögin þess efnis að endurskoðun fari fram innan 18 mánaða frá gildistöku þeirra.