143. löggjafarþing — 123. fundur,  18. júní 2014.

frestun verkfallsaðgerða Flugvirkjafélags Íslands gegn Icelandair.

616. mál
[17:10]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tek heils hugar undir með þingmanninum hvað það varðar að verkfallsrétturinn er og ætti að vera heilagur öllum launþegum og að ekki eigi að grípa inn í kjaradeilur nema menn telji að almannahagsmunir blasi við.

Ég spurði þingmanninn hins vegar einfaldrar spurningar og mér þætti vænt um ef hann svaraði henni.