frestun verkfallsaðgerða Flugvirkjafélags Íslands gegn Icelandair.
Virðulegi forseti. Það er svolítið eins og maður sé að verða biluð plata, en af því að við höfum ekki fengið nein svör vil ég spyrja hæstv. forseta: Hvers vegna var ekki haft samráð eins og ber gera samkvæmt þingskapalögum við formenn þingflokka á Alþingi þegar dagskrá þessa þingfundar var ákveðin?
Þar segir, með leyfi forseta:
„Forseti skal hafa reglulega samráð við formenn þingflokka, eða fulltrúa þeirra, um skipulag þingstarfa og leggja fyrir þá til umfjöllunar starfsáætlun þingsins og áætlanir um þingstörf hverrar viku.“
Þetta hefur ekki verið gert. Það hefur heldur ekki verið haft samráð við forsætisnefnd. Óskum um óundirbúinn fyrirspurnatíma hefur ekki verið svarað. Ef einhver bragur á að vera á því að menn fái að koma með mál eins og hér er verið að ræða þarf líka að fylgja þingsköpum. Það er ekkert hér sem að mínu mati heimilar það að menn ýti þingsköpum (Forseti hringir.) til hliðar og haldi fundi um mál af þessu tagi. Ég óska eftir svörum frá hæstv. forseta eins og ég hef gert frá því að þessi þingfundur hófst.