143. löggjafarþing — 123. fundur,  18. júní 2014.

frestun verkfallsaðgerða Flugvirkjafélags Íslands gegn Icelandair.

616. mál
[18:11]
Horfa

innanríkisráðherra (Hanna Birna Kristjánsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þessu hefur verið komið áleiðis og eins og ég sagði áðan og ítreka nú getur hv. þingmaður treyst því að málið fer í það ferli sem ég lýsti hér áðan. Vonandi fáum við einhverja greiningu á því fyrr en síðar.