frestun verkfallsaðgerða Flugvirkjafélags Íslands gegn Icelandair.
Herra forseti. Ég hafði hugsað mér að ræða aðeins um þetta mál í 1. umr. en hafði svo ekki tök á því þegar til kom þannig að ég ætla að nýta mér að ræða það hér við 2. umr. og taka nokkur atriði, bæði sem snúa að formi málsins og efnisinnihaldi.
Í fyrsta lagi verð ég að segja að það kemur mér dálítið spánskt fyrir sjónir sem hefur verið upplýst í þessari umræðu nú þegar af hálfu hv. þingmanna Katrínar Júlíusdóttur og Katrínar Jakobsdóttur og kemur fram í nefndaráliti minni hlutans, að fulltrúar stjórnarandstöðunnar hafi þurft að eiga orðastað við gesti af hálfu Alþýðusambandsins frammi á gangi á nefndasviði en ekki fengið að spyrja þá til hlítar á nefndarfundi. Þetta er eitt af því sem verður að segja að er algjör óþarfi. Það er algjör óþarfi að standa þannig að málum þegar verið er að afgreiða viðkvæm mál eins og hér eru á ferðinni, að reyna þá ekki að vanda sig í því að að öllum formsatriðum sé gætt og menn fái sinn tíma til þess að eiga orðastað við þá gesti sem kallaðir eru á fundi nefndarinnar. Það er ekki aðeins óvirðing við þingmenn sem í hlut eiga heldur líka við þá gesti sem eru boðaðir á þessum tíma til að ræða við þingið og vilja koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
Ég sagði í andsvari við 1. umr. eða í athugasemdum fyrr í dag að ég teldi að sjálfsögðu meiri og betri brag að því að setja lög á Alþingi en að það væri gert með bráðabirgðalögum. Sem betur fer hefur bráðabirgðalagaheimildinni æ sjaldnar verið beitt. Ein meginrök fyrir því að þingið komi saman til þess að setja lög eru einmitt að þeir aðilar sem mál varða geti komið sjónarmiðum sínum á framfæri við löggjafann og hafi rétt til þess að á þá sé hlustað og geti komið málflutningi sínum á framfæri. Það gefur líka möguleika á því að þau sjónarmið sem þar koma fram komi fram í nefndarálitum og séu þá gögn í málinu. Það er auðvitað ekki hægt ef aðilar máls fá ekki tækifæri til þess að svara og þingmenn ekki tækifæri til þess að spyrja, þannig að það tel ég ámælisvert. Eins og ég segi er þetta óþarfi. Eitt, tvö korter til eða frá geta ekki skipt sköpum í vinnu nefndarinnar hvað þetta snertir.
Síðan langar mig að ræða aðeins um form mála af þessum toga. Það hefur verið viðhaft í allmörg skipti þegar sett hafa verið lög í vinnudeilum að sá ráðherra, fagráðherra sem um málaflokkinn fjallar, komi hér með frumvarp. Ég velti því upp í umræðunni fyrr í dag hvort það væri ekki eðlilegt, af því að hér er inngrip í vinnulöggjöfina, í verkfallsréttinn, þetta er vinnumarkaðsaðgerð, þetta er vinnuréttarinngrip, að það væri sá ráðherra sem færi með vinnuréttarmál sem legði fram frumvarpið og samsvarandi þingnefnd fjallaði þá líka um þau mál.
Nú er talað um í þessu samhengi að þetta hafi mikil áhrif á samgöngur en kannski ekki síst á ferðaþjónustuna sem atvinnugrein. Þá veltir maður fyrir sér: Af hverju er það þá ekki sá ráðherra sem fer með ferðaþjónustuna sem flytur málið? Hin samfélagslegu eða efnahagslegu áhrif eru meiri heildstætt á atvinnugreinina sem slíka heldur en einungis á flutninga hjá því eina fyrirtæki sem er undir í þessu efni. Þetta er meira ábending í umræðunni inn í framhaldið, að menn hugi aðeins að því. Svo má líka velta því upp að hefð er fyrir því að forsætisráðherra flytji mál sem heyra undir fleiri en einn ráðherra, sem má alveg færa rök fyrir að séu í þessu tilfelli. Mér finnst tilefni til að velta því fyrir sér.
Mig langar að ræða um efni málsins og um vinnuréttinn sem slíkan og verkfallsréttinn sem slíkan. Þess vegna hafði ég orð á því fyrr í dag að mér fyndist mikilvægt að hæstv. félagsmálaráðherra, sem fer með vinnuréttarmál, væri viðstödd þessa umræðu. Hún hefur verið það og komið inn á andsvör við einstakar ræður þar sem tilefni hefur verið til og sett fram ýmis sjónarmið. Mig langar til þess að inna hæstv. ráðherra meira eftir því og ég teldi að gagnlegt væri að fá í ítarlegra máli af hennar hálfu en aðeins í andsvörum sjónarmið um það hvert vinnurétturinn og verkfallsrétturinn er að þróast, vegna þess að eins og hér hefur verið bent á er það að gerast í þriðja skipti á tiltölulega skömmum tíma að farið er með lagasetningu inn í deilu um kaup og kjör á vinnumarkaði. Því er ítrekað haldið fram, og ég held að engin ástæða sé til þess að efast um að það sé sjónarmið þeirra ráðherra sem hafa tjáð sig um málið núna, að þetta sé neyðarúrræði. Þar af leiðandi verður eðlilega að fara mjög sparlega með íhlutununarvaldið af hálfu löggjafans. Menn velta því fyrir sér í þessari umræðu á hvaða leið við séum með verkfallsréttinn þegar inngrip af þessu tagi kemur fyrir aftur og aftur.
Mig langar að heyra nánar frá hæstv. félagsmálaráðherra hvort hún hafi engar áhyggjur af því sjónarmiði, vegna þess að eðlilega hlýtur ekki síst launþegahreyfingin að hafa áhyggjur af því að um leið og eitthvað bjátar á eða það gengur illa saman hlaupi menn til og setji lög. Í þessu tilfelli er vinnustöðvunin ekki einu sinni hafin. Hún er ekki hafin. Og hverjir eru hinir ríku efnahagslegu og samfélagslegu hagsmunir sem í húfi eru og hver er mælikvarðinn, hver á hann að vera? Í greinargerð með þessu frumvarpi er aðeins talað um tekjur eða tekjutap þess fyrirtækis sem um ræðir en það eru ekki reidd fram nein gögn um efnahagsleg áhrif vinnustöðvunarinnar á þjóðarbúið í heild og það virðist ekki hafa verið reitt fram í nefndinni, a.m.k. kemur það ekki fram í nefndaráliti meiri hlutans nema í einhverjum almennum orðum. Það eru engar tölur eða eitthvað þess háttar.
Í umræðum um verkfall flugstjóra hér fyrr á árinu stóð yfir verkfall framhaldsskólakennara, eins og menn muna. Þá veltu menn því fyrir sér: Hvert er verðmætamatið þegar menn segja að miklir efnahagslegir hagsmunir séu í húfi? Er mælikvarðinn bara krónur og aurar í augnablikinu fyrir það fyrirtæki eða þann vinnuveitanda sem í hlut á hverju sinni? Hver eru efnahagsleg áhrif fyrir samfélagið ef tiltekinn hluti, við skulum segja framhaldsskólanema, flosnar úr námi vegna verkfalls? Það kemur kannski ekki fram í krónum og aurum í augnablikinu en samfélagslegu áhrifin geta verið mjög mikil til lengri tíma litið. Sá mælikvarði virðist ekki vera notaður heldur einungis krónur og aurar einhvers tiltekins vinnuveitanda eða tiltekinna vinnuveitenda í augnablikinu, til skamms tíma litið. Ég hef áhyggjur af því að menn leggi fram almennar vangaveltur um að þetta séu mikil efnahagsleg áhrif og þess vegna þurfi að grípa til ráðstafana án þess að leggja fram ítarleg gögn máli sínu til stuðnings. Þetta á að vera neyðarráðstöfun og þess vegna verða menn að hafa málflutning sinn þannig að hann standist algjörlega skoðun.
Ég nefndi fyrr í dag bæði rannsóknarreglu og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Hæstv. innanríkisráðherra fullyrti að það hefði verið viðhaft í þessu máli af hálfu ráðuneytisins. En þá hefði ég spurt: Var rannsakað hver hin efnahagslegu áhrif eru á samfélagið í heild? Af hverju kemur það hvergi fram, hvorki í greinargerð með frumvarpinu né í nefndaráliti hv. umhverfis- og samgöngunefndar? Það kemur ekki fram. Það er ekki reitt fram hver þau áhrif eru.
Frá mínum bæjardyrum séð er mjög erfitt að styðja frumvarp af þessum toga nema þannig upplýsingar séu fyrir hendi að maður sannfærist um alvarleika málsins. Auðvitað vitum við það alveg sem sagt er hér almennum orðum, að vinnustöðvun af þessu tagi hefur áhrif í samfélaginu, maður veit það. En til þess að rökstyðja slíkt inngrip og íhlutun verða að liggja fyrir mjög greinargóðar upplýsingar og í gögnum málsins, að mínu mati. Ég tel að málið hafi ekki verið undirbúið nægilega vel.
Ég vil líka nefna að vinnustöðvunin er ekki hafin. Það hafa verið vinnustöðvanir dag og dag en hin varanlega eða lengri tíma vinnustöðvun var boðuð frá og með morgundeginum. Maður veltir þá fyrir sér hvort ekki sé verið að hlaupa dálítið hratt til og fljótt til þess að beita því neyðarúrræði sem menn segja að það sé.
Ég neita því ekki að ég hef líka velt því fyrir mér hvað ég hefði gert ef ég væri í þeirri stöðu að vera stjórnarliði við þessar aðstæður. Það er eðlilegt að menn meti líka afstöðu til máls út frá því og reyni að horfa á þetta í heildarsamhengi. Ég geri mér alveg grein fyrir því að það kunna að vera aðstæður til staðar í samfélaginu þar sem óhjákvæmilegt er að fara inn í vinnudeilu á þennan hátt. En ég legg líka ríka áherslu á að það á að fara sparlega með slíkar aðgerðir og það verður að meta hvert tilfelli fyrir sig. Það er ekki hægt að segja að hafi menn til dæmis á einum tímapunkti stutt aðgerðir hljóti menn að gera það alltaf eða öfugt, vegna þess að hvert tilefni er sérstakt og aðstæðurnar eru breytilegar frá einum tíma til annars. Þess vegna hef ég svona miklar efasemdir um þetta mál.
Ég vil líka spyrja, af því að ég nefni til sögunnar bæði rannsóknarréttinn og meðalhófsreglu stjórnsýslulaganna, hvort farið hafi verið yfir dóma og annað slíkt. Hér er vísað í hæstaréttardóm frá árinu 2002, en því hefur líka verið haldið fram að íhlutun á borð við þessa fari í bága við mannréttindasáttmála Evrópu. Ég velti fyrir mér hvort menn hafi skoðað til dæmis það sem hefur komið frá Mannréttindadómstólnum, álit eða úrskurðir í tilfellum sem þessum, og hvort stjórnvöld hafi engar áhyggjur af því að það kunni að vera, eins og ég heyri eða sé að Alþýðusambandið segir, að sú leið sem hér er farin fari í bága við mannréttindasáttmála Evrópu. Mér leikur forvitni á að vita hvort ríkisstjórnin og hæstv. ráðherrar sem í hlut eiga eða ríkisstjórnin í heild hafi látið skoða þau mál eitthvað sérstaklega.
Þetta eru sjónarmið sem ég vil gjarnan hafa komið fram með í þessari umræðu. Ég ætla ekki að tjá mig sérstaklega um það hvernig ég mun greiða atkvæði um þetta mál, það kemur í ljós á eftir. Ég tel alla vega að ekki liggi fyrir þær upplýsingar sem þyrftu að liggja fyrir til þess að hægt sé að styðja málið, en ég geri mér auðvitað mætavel grein fyrir því að aðstæðurnar eru snúnar í þessu tilfelli.
Ég óska eftir því að hæstv. félagsmálaráðherra komi aðeins inn í umræðuna og geri grein fyrir þeim sjónarmiðum sem hún hefur varðandi þróun verkfallsréttarins og hvert við stefnum í því efni. Hún nefndi í andsvörum sínum í dag að hún teldi að það kæmi til álita að hefja vinnu við að skoða þetta umhverfi. Það er auðvitað líka viðkvæmt. Það er að sjálfsögðu ekki hægt að segja fyrir fram að maður sé andsnúinn því að mál af þessum toga séu tekin til skoðunar, en á meðan maður hefur ekkert í höndunum um það á hvaða vegferð núverandi ríkisstjórn er í málefnum sem þessum getur maður auðvitað ekki fyrir fram sagt að maður muni styðja eitthvað í því efni. Það hlýtur að helgast af því hvaða tillögur væru uppi á borðinu og hvernig mál væru unnin, í hvers konar samráði það væri gert við aðila vinnumarkaðarins, við stjórnmálalífið í landinu o.s.frv. Ég kalla eftir því að hæstv. félagsmála- og húsnæðisráðherra tjái sig um þetta því að það skiptir máli hvaða sjónarmið hún hefur í því efni, t.d. hvort hún hafi einhverjar áhyggjur af því að ítrekuð íhlutun í verkfallsréttinn, eins og hér hefur verið talað um, geti orðið til þess að grafa undan þessu mikilvæga tæki launþegahreyfingarinnar til að knýja fram kjarabætur, af því að sá réttur er mikilvægur. Hann er, eins og hefur margítrekað komið fram, tryggður í 74. gr. stjórnarskrárinnar og hann er tryggður í lögunum um stéttarfélög og vinnudeilur þar sem líka er fjallað um ríkissáttasemjara, um sáttastörf í vinnudeilum o.s.frv.
Ég tel því að það sé að mörgu að hyggja og menn fari of hratt fram með málið, séu of fljótir að grípa til þess ráðs að blanda sér í vinnudeiluna með lagasetningu, í þessu tilfelli áður en hið raunverulega verkfall er skollið á og það finnst mér orka afar tvímælis. Ég fyrir mína parta hef tilhneigingu til að segja að ef ég væri í þessum sporum — þó að alltaf sé erfitt að segja hvað maður mundi gera — ég hefði haldið að maður hefði frekar viljað láta reyna til þrautar og láta þá verkfallið skella á og ekki bregðast við fyrr en það væri farið að hafa raunveruleg áhrif.
Nú geri ég mér grein fyrir því að í þeim geira sem um ræðir þurfa menn að taka ákvarðanir með talsverðum fyrirvara og það kann vel að vera að menn þurfi og hefðu þurft að taka ákvarðanir fyrir einhverja daga fram í tímann. Ég skal ekki gera lítið úr því en það lýtur fyrst og fremst að fjárhagslegum hagsmunum einstaka fyrirtækis en ekki endilega efnahagslegum áhrifum í heild, því að þau koma væntanlega ekki fram nema á mun lengri tíma.
Þetta vildi ég láta koma fram. Ég ítreka það sem ég sagði í upphafi að mér finnst mjög miður ef staðið hefur verið að vinnu í nefndinni á þann hátt sem hv. þingmenn Katrín Júlíusdóttir og Katrín Jakobsdóttir létu koma fram, að þeim hafi ekki gefist kostur á að eiga orðastað við alla gesti á fundum nefndarinnar og kalla eftir svörum og viðbrögðum og hafi þurft að gera það utan fundar. Það er óvenjulegt og það er ekki til þess að styrkja málstað þeirra sem flytja málið í þinginu við 2. umr., nema síður sé, og gerir það kannski frekar fýsilegt að leggjast gegn samþykkt frumvarpsins heldur en hitt.
Virðulegur forseti. Ég vildi að þessi sjónarmið fengju að koma fram í umræðunni. Ég geri mér grein fyrir því að það stendur væntanlega til þess að afgreiða þetta mál á næstu klukkutímum eða svo en tel mikilvægt að ýmis sjónarmið komi fram, sérstaklega að því er varðar form málsins og það hverjir flytja mál sem þetta og hvernig að því er staðið. Það er umræða sem ég tel að eigi fullan rétt á sér þó að hún snerti ekki þetta mál eitt og sér sérstaklega. Hún á fullan rétt á sér inn í framtíðarvinnu ef það er ætlunin að skoða eitthvað frekar lagaumgjörð á sviði vinnumarkaðsmála, vinnuréttar og það sem varðar verkföll, verkbönn og sáttastörf í vinnudeilum.